Áttundi verzlingur vikunnar

Where do I even start? Ef þið misstuð af VÍ-mr vikunni í ár mæli ég sterklega með því að finna tímavél kæru lesendur því orð geta eiginlega ekki lýst þessu. Vikan byrjaði strax á sjóðheitu debate um Bonnie Blue, með eða á móti, #ÉgKemMeð og í hádeginu kom Trúbbi og skemmti Verzlingum. Á þriðjudagstilboðinu voru cösu-keppnir í mr sem við unnum bla bla bla oooog það er komið að því... miðvikudagurinn.
Miðvikudagurinn snérist auðvitað bara um eitt: VÍ-mr fótboltaleikinn sem Versló vann 5–4! En sagan endar ekki beint þar haha. Það hefði mátt halda að tökur á Avengers: Doomsday og næstu John Wick mynd væru bæði í gangi þarna á sama tíma og leikurinn. Við erum (allegedly) að tala um (til dæmis) hrákur, högg, kampavínsflöskur í hausa og mikla ölvun. Það lá við að leikurinn rataði inn á Sky-News það var svo mikið fjallað um hann í fréttunum #EinFréttVarNógGuys. En shæze þetta er auðvitað mjög skaðlegt fyrir orðspor beggja skóla og stjórnendur aflýstu öllum keppnum sem áttu að vera á fimmtudaginn í Hljómskálagarðinum og frestuðu Morfís ræðukeppninni til sunnudags #Shi.
SKESKÓ blaðið var samt auðvitað gefið út samkvæmt plani og Versló hliðin var til fyrirmyndar en mr-ingar ákváðu að gera sína hlið ógeðslega lélega. Vikunni var síðan slúttað með ljúfum tónum í boði DJ Önnu Ármann í matbúð. GGs.
En, ég kynni nú áttunda Verzling Vikunnar, það er Högni Dignus í 2.A! Það var nefnilega þannig að H-Dih upplifði miðvikudaginn aðeins öðruvísi en flestir. Hann byrjaði daginn á því að frétta að bíllinn hans hafði runnið á Mini Cooperinn hennar Önnu Ármann niðri á Versló bílastæði. Margir höfðu bara farið heim til sín og grenjað en nei, ekki Dignussy. Hann mætti á VÍ-mr leikinn og var tilbúinn að fórna öllu fyrir Versló. Þegar hann sá að allt var að verða vitlaust og mr-ingar orðnir bjálaðir setti hann sig á milli saklausra Verzlinga og óðra mr-inga og sagði:
„If you want to get to them, you have to go through me first.“
Hann var síðan smettaður og endaði kvöldið uppi á sjúkrahúsi. Þetta hugrekki og þessi drifkraftur er það sem gerir Högnus að VV8. Hann var ekki hetjan sem við áttum skilið heldur var hann hetjan sem við þurftum.
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar
Heimildaskrá (APA)
Agnar Már Másson. (2026, 8. október). „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“. Vísir. https://openad01.visir.is/g/20262945894d/-varpar-skugga-a-skolasamfelagid-i-heild-
Agnar Már Másson. (2026, 8. október). Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram. Vísir. https://varnish-7.visir.is/g/20262945818d/dagskra-aflyst-i-dag-og-oljost-hvernig-raedukeppnin-fer-fram
Allt vitlaust á Nesinu: Kjaftshögg, hrákar og mikil ölvun. (2026, 8. október). mbl.is. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/08/allt_vitlaust_a_nesinu_kjaftshogg_hrakar_og_mikil_o/
Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ–MR. (2026, 8. október). Vísir. https://openad01.visir.is/g/20262945498d/kjaftshogg-blys-og-hrakur-a-vi-mr
Ölvun og slagsmál á fótboltaleik MR og Versló. (2026, 8. október). mbl.is. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/08/olvun_og_slagsmal_a_fotboltaleik_mr_og_verslo/
Skólayfirvöld bregðast við eftir fyllerí og ofbeldi í gær. (2026, 8. október). mbl.is. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/08/skolayfirvold_bregdast_vid_eftir_fylleri_og_ofbeldi/











